Gaman á Gaflaranum um helgina
Ármenningar skemmtu sér vel á Gaflara-mótinu sem haldið var í Kaplakrika í Hafnarfirði á laugardaginn var. Keppt var í völdum greinum frá flokki 6-7 ára og upp í 14 ára. Margir komu heim með verðlaunapening um hálsinn og ennþá fleiri settu persónuleg met. Þeir félagar Halldór Kossi Ange Tryggvason og Árni Steinar Árnason stóðu sig vel í 60m hlaupi og langstökki 11 ára pilta. Þeir bættu sig báðir í báðum greinum og Halldór Kossi náði 1.-2. sæti í 60m hlaupi á tímanum 8,79 og 3. sæti í langstökki með 4,17m.